Þegar ég húkti við eldhúsborðið í hádeginu, ein í öskrandi þögn þynnkunnar og var að reyna að næra mig eitthvað, þá rak ég augun í kassa af Melrose's tei. Af einskærum leiðindum og ömurlegheitum fór ég að lesa á kassann.
Directions: Place a Melrose's tea bag in a warmed teapot. Pour in boiling water. Infuse for 3-5 minutes. One Melrose's tea bag is sufficient for 2 cups of delicious tea.Sjáum nú fyrir okkur manneskju eða aðra nokkuð vitiborna veru. Þessi vera sér tepoka og getur ekki ímyndað sér hvað á að gera við hann. Hvað gerir þessi vera? Jú, fyrir náð teframleiðandans getur þessi vera lesið sér til um það.
En bíðum nú við... hverjar eru fokkings líkurnar á því að sá sem ekki veit hvað á að gera við tepoka, kunni að lesa?!
0 Responses to “Te.”
Leave a Reply